Síðan mín

Geta, Ætla og Skal

29.11.2007 15:17:43 / 2flkvk

Er það ekki bara......

Jæja

Það er svo mikil umferð inn á þessa síðu að mér finnt ég þurfa að setja eitthvað hérna inn :-)


 

Andlegt viðhorf
Hvað gerir góðan leikmann stórkostlegan? Stærðin, styrkurinn, skottæknin, hraðinn eða snerpan? Ég trúi því að það sé viðhorf hans? Eiginleiki þeirra er að sætta sig við umhverfið og gera það sem þeim finnst skemmtilegt. Þeir sem eru vanir að tapa (losers) virðast aldrei skilja af hverju þeir töpuðu. Þeir skella skuldinni á dómarana, völlurinn lélegur eða íþróttahúsið lélegt, samherjarnir og fleiri utanaðkomandi ástæður. Þeir sem eru vanir að sigra (winners) spila hins vegar af sér öll vandamál. Einu sinni var spurt um hvað það væri sem skipti mestu máli í körfuknattleik? "Það er án efa 15 cm. svæðið á milli eyrna þinna". Sigurinn fellur þeim í skaut sem halda einbeitingu. Góðir leikmenn láta aldrei andstæðingana eða utanaðkomand áhrif stjórna leiknum. Þeir eru andlega sterkir og í góðu andlegu ástandi. Það er auðvelt að missa stjórn á sér þegar hlutirnir ganga ekki upp. Þeim meiri tíma sem þú eyðir í að spá í þá hluti sem gengu ekki upp, því fleiri hlutir hætta að ganga upp. Ég get ekki talið þau skipti sem ég hef séð leikmenn missa boltann og svo stjórn á skapi sínu vegna þess að andstæðingurinn uppnefndi mömmu hans. Ef andstæðingur getur haft slík áhrif á leikmann þá spyr ég, hvor vinnur leikinn? Strax og þú hefur misst stjórn á skapi þínu ertu búinn að missa stjórn á þínum leik og öllu er beint gegn þér, dómarinn dæmir á þig, þú skorar ekki úr dauðafærinu, þetta er eins og með borgararstríð, strax og það er búið þá verða þeir HISTORY ( gleymt og grafið;).
-
Íþróttamannleg framkoma
Sýndu íþróttamannlega framkomu! Það er auðvelt að vera sigurvegari, en að bera höfuð hátt eftir erfitt tap setur þig í sérflokk. Góðir leikmenn taka aldrei tapi vel. Ef þú hefur lagt þig 110% fram en þú varst samt sigraður þá er enginn skömm fyrir því að hafa tapað. Sýndu þeim virðingu sem spiluðu betur þennan daginn. Lærðu af því og láttu það svo eiga sig. Virðingin sem þú öðlast frá andstæðingnum og áhorfendum er vel þess virði.
-
Líkamsástand
Vertu í formi! Hetja er ekkert hugrakkari en hinn venjulegi maður, en hetjan er hetja fimm mínútur lengur en hinn venjulegi. Eyddu eins miklum tíma í umhyggju um líkamann eins og þú eyðir í leikinn sjálfan. Borðaðu góðan mat, sjáðu til þess að þú fáir næga hvíld, hlauptu þrisvar í viku, forðist áfengi, tóbaki og eiturlyf. Að æfa einn er ekki auðvelt, en eins og þjálfarinn Lombardi sagði, hreyfingarleysi gerir okkur að hugleysingja. Að tapa leik á síðasta stundarfjórðungnum vegna lélegs þols er ófyrirgefanlegt. Ef þú tapar leik gangtu þá úr skugga um að andstæðingurinn hafi leikið betur en þið, ekki aðeins sigrað á betra formi.
-
Ekki búið fyrr en það er búið

Gefstu aldrei upp! Sigurvegari gefst aldrei upp. " Sá sem sigrar hefur oft verið talinn búinn að vera, en þeir heyrðu einfaldlega ekki í dómaranum" (Jansen). Að finna leiðina að sigri er merki um gott lið. Ekkert er ógerlegt ef þú trúir. Þú verður hissa á því hvað getur gerst ef þú gefst aldrei upp.
-
Skuldbinding og hörð vinna
Leggið mikla vinnu á ykkur og verið áköf. Láttu aldrei vanta baráttu og vilja. Það lið sem er harðfylgið kemur yfirleitt út sem sigurvegari. Sýnið eldmóð! Íþrótt eða eitthvað annað er ekki vinna, nema að þú viljir gera eitthvað annað. Skuldbindið ykkur til að skara fram úr, þú getur alltaf bætt við. Þegar stórafrek gærdagsins eru enn þá stór í dag, þá hefurðu ekki gert mikið í dag. Það er enginn skiptimaður til að fara á æfingu. Ekki telja dagana... láttu hvern dag telja. Eini maðurinn sem heldur þér á varamannabekknum og frá byrjunarliðinu......ert þú! .
-
Samherjar

Góðir leikmenn gagnrýna sjálfa sig, ekki liðsfélagana. Allir hafa tækifæri á að bæta sig og ná framförum, alveg sama í hvaða flokki þeir eru og það að tala um einhvern sem er kominn styttra á veg í þjálfun á aldrei eftir að hjálpa þér að bæta leik þinn. Mundu, að það er enginn "ÉG" í liði. Fylgstu með því sem liðsfélagar þínir eru að gera og áhugamálum þeirra, það hjálpar til við að ná betri árangri. Það tekur 11 leikmenn (fótbolti) að vinna saman til þess að niðurstaðan verði árangursrík eða eiginlega 17 ef bekkurinn er talin með.
-
Leiðtogi
Vertu aldrei hræddur við að stjórna. Ef einhver liðsmaður á í erfiðleikum þá á að hvetja hann áfram og koma honum á rétta braut. Á æfingum skaltu mæta fyrstur á völlinn en vertu síðastur til að yfirgefa hann. Spjallaðu á vellinum, stjórnaðu umferðinni, láttu vita ef einhver er í góðu færi eða þegar vörnin hefur opnast upp á gátt. Það sem þú sérð kannski skýrt í dag á annar erfitt með að sjá. Þú getur aldrei gengið að mótherja sem vísum, berðu virðingu fyrir hverjum og einum andstæðingi sem þú mætir og getu hans. Vertu leikmaður sem segir ég "get", fremur en leikmaður sem segir ég"get ekki". Ekkert stórafrek hefur verið gert án eldmóðs. Vertu fullkominn leikmaður!

Umhugsunarefni í lokin
Vertu harður! En taktu þig ekki of alvarlega þannig að þú gleymir að lykta af rósunum. Njóttu leiksins, mörg dæmi eru notuð í kennslustundum um lífið og tilveruna af íþróttafólki sem hefur gaman af og lært mikið af því að hlaupa á trégólfinu. Mundu, við getum ekki alltaf stjórnað því sem gerist fyrir utan íþróttirnar en við getum stjórnað því sem gerist þar fyrir innan. Vertu andlega sterkur, láttu aldrei hluti sem gerast inn á vellinum verða valdur af brotthvarfi þína af vellinum. Einbeyttu þér að því sem skiptir máli, reynslunni og lærdómnum. Reyndu eins mikið og þú getur til þess að verða góður og þá mun það besta koma til þín. Meistarar eru búnir til, þeir eru ekki fæddir meistarar. Eiginleikar geta komið þér á toppinn en það þarf karakter til að halda þér þar.

Alltaf hressir sjáumst :-)

 


» 0 hafa sagt sína skoðun

11.11.2007 17:05:37 / Teddi

Alltaf hressir..............

 

Svo er bara að hafa gaman af þessu lífi og brosa þó það geti stundum verið erfitt en hér koma nokkrir góðir punktar:

-

1. Vertu jákvæð persóna, brostu.
2. Hrósaðu þeim sem eiga það skilið, færð það tilbaka.
3. Ekki gleyma þér í vandamálunum, það er ekkert mál að glíma við þau.
4. Láttu þá sem þér þykir vænt um vita af því.
5. Þú getur gert og orðið það sem þú vilt, ef þú vilt þegar þú vilt.

-

 

Sjáumst á vellinum

 

kv Teddi

 

» 1 hafa sagt sína skoðun

15.08.2007 13:46:59 / Teddi

Leikurinn í dag..........

Jæja stelpur

Þá erum við loksins komin heim úr æðislegri ferð til Færeyja, þar sem að mfl kv fór á kostum í Evrópukeppni kvenna og vann riðilinn sinn öruggt.

En nú er komið að næsta verkefni hjá okkur og er það leikur við Þrótt. Spilað verður á Hlíðarenda og hefst leikurinn kl 19:00 en það er mæting kl 17:30 hjá eftirfarandi hóp.

Hópurinn:

Ása, Magga, Anna María, Linda Rós, Lára, Anna G, Thelma Ýr, Lilja, Aníta, Bára, Bentína, Begga B, Begga Gná, Thelma B, Kristrún, Lovísa og Sólveig.

Byrjunarliðið verður tilkynnt kl 17:45 niður á Hlíðarenda inn í klefa


» 6 hafa sagt sína skoðun

06.08.2007 22:47:45 / Teddi

Dagarnir 7. - 15.ágúst hjá okkur

Jæja stelpur

Þá er Verslunarmannahelgin frá og við getum haldið áfram með æfingar. Það er ótrúlegt hvað maður heyrir frá Vestmannaeyjum um leikmenn 2.fl.kv hjá Val en það verður rætt seinna.

Eins og þið vitið þá er mfl,kv að fara til Færeyja til þess að taka þátt í evrópukeppninni en við munum spila 3 leiki. 1 á móti Hollensku meisturunum, 1 leik við Finnsku meistaranna og svo 1 leik við Færeysku meistaranna en á meðan þá takið þið á því, almennilega :^) . Magni ætlar að taka nokkrar æfingar fyrir mig og hann veit hvað ég vill að þið gerið, jafnframt fæ ég að vita hverja mæta og hverjar leggja sig fram.

Dagskráin:

Þriðjudaginn 7.ágúst, Hlíðarendi kl 17:00-18:00 (Teddi)

Miðvikudagurinn 8.ágúst, Hlíðarendi kl 18:00-19:30 (Lea)

Fimmtudagurinn 9.ágúst, Hlíðarendi kl 18:30 (Magni)

Föstudagurinn 10.ágúst, Hlíðarendi kl 18:30 (Magni)

Laugardagurinn 11.ágúst, FRÍ FRÍ FRÍ

Sunnudagurinn 12.ágúst, skokka sjálfar í 60 mín og taka styrktaræfingar

Mánudagurinn 13.ágúst, Hlíðarendi kl 18:30 (Magni)

Þriðjudagurinn 14.ágúst, Hlíðarendi kl 18:30 (Magni)

Miðvikudagurinn 15.ágúst, Hlíðarendi Íslandsmót (11 m) Valur vs Þróttur, mæting kl 17:30

Staðreynd......... 

Munið að þegar að maður sefur lítið og borðar óreglulega og gerir annað sem að fylgir svona útihátíðum, þá tekur það líkamann langan tíma til þess að jafna sig og það þarf að hvíla sig vel og borða vel. Því að ég trúi því ekki að einhver leikmaður vilji láta þetta bitna á liðinu sínu sem að þið eruð partur af, er það nokkuð ?  

Heilræði..........

"það er undir hverjum og einum komið hversu langt hann eða hún ætlar að ná í lífinu sem og fótboltanum" 

 

Áfram Valur


» 22 hafa sagt sína skoðun

02.08.2007 23:56:38 / Teddi

Helgin og næsta vika................

Jæja stelpur

Farið nú varlega um Verslunarmannahelgina stelpur mínar og munið að fótbolti og áfengi fara ekki saman.

Það er ekki æfing fyrr en á mánudaginn og verður hún kl 18:30 á Hlíðarenda og ef að eitthvað breyttist þá sendi ég ykkur sms. Ég vill sjá ykkur á æfingunni, takk fyrir...................

En þær sem eru heima ef að ég væri þið þá getið þið að sjálfsögðu skokkað aukalega.

Áfram Valur


» 4 hafa sagt sína skoðun

01.08.2007 10:51:49 / Teddi

leikurinn, dagurinn í dag og vikan hjá okkur...........

Jæja stelpur

Leikurinn í gær var mjög góður hjá okkur og lönduðum við sigri á sprækum kr-ingum 6-1 þar sem að við vorum 1 færri síðustu 30 mín, því að hún María mín suppskar réttmætt rauttspjald á 61 mín. En þrátt fyrir það heldum við okkar striki og kláruðum þetta með stæl. Allan leikinn vorum við mjög duglegar að skapa okkur færri með stanslausri barráttu og vinnu á vellinum, glæsilegt ;) Allur hópurinn stóð sig vel í gær og þær sem komu inná gengu beint til verks og stóðu sig vel. Ég ætla ekki að hæla einum leikammni frekar en öðrum en það var gaman að sjá hvað Thelma Björk var ávallt hættuleg þegar að hún var með boltann og hún var mjög dugleg að skapa sér og öðrum færri. Svo endaði það með því að hún skoraði mjög verðskulda undir lok leiksins 1 mark en aðrir markaskorarar voru Dagný 2, Andrea 2, Aníta og Thelma Björk sitthvort markið. En staðan í hálfleik var 2-1 okkur í vil.

Lovísa ég talaði við mömmu þína í gær og hún staðfesti það að þú hefðir þvegið búninganna og þrifið neðri hæðina (hún er mjög lítill reyndar) líka hehehe, ég er stoltur af þér :lol:

það verður ekki æfing í dag en þið eigið allar að fara að skokka sjálfa og taka styrktarpakk (bannað að svíkjast um). Því að þið vitið það að það verður erfirr prógram hjá okkur í ágúst og við ætlum okkur að standast það 100%.

Það verður æfing á morgun fimmtudag kl 17-18 á Hlíðarenda og svo vill ég minna ykkur á leik hjá mfl kv á móti Stjörnunni á fimmtudaginn kl 19:15 á Stjörnuvellinum, mætið því að við þurfum á ykkar stuðningi að halda, áfram Valur.

Stelpur það er spurning hvort að við eigum að fara í Lazer-tag (ég býð) um helgina svona að gera eitthvað saman, hverjar eru til hehehehe 

  


» 9 hafa sagt sína skoðun

28.07.2007 19:11:14 / Teddi

Frí á morgun en.........

Jæja stelpur

Ég verð að viðurkenna svolítið og það er að ég var búinn að gleyma úrslitaleik U19 á morgun á Laugardalsvellinum á milli Þjóðverja og Englendinga :$ hehehe. Þannig að það er frí á morgun en það eiga allar að fara út að skokka og taka styrktaræfingar :haha:

Næsti leikur hjá okkur er á móti KR á þriðjudaginn á Hlíðarenda kl 20:00 og er hann löngu byrjaður........ég veit fyrir víst að kr-stelpurnar mæta vel stemmdar og ákveðnar til leiks.

Mánudagurinn 30.júlí, Hlíðarendi kl 17:00-18:00

Þriðjudagurinn 31.júlí, Hlíðarendi mæting kl 18.30 (byrjunarliðið tilkynnt á morgun)

Hópurinn: Ása, Lovísa, Dagný, Andrea, Kristrún, Thelma Ýr (?), Bára, Lilja, Anna María, María Rós, Linda Rós, Magga, Begga Gná, Aníta, Begga B, Thelma Björk og Anna G

Miðvikudagurinn 1.ágúst, nánar síðar


» 0 hafa sagt sína skoðun

27.07.2007 00:11:44 / Teddi

heheheheheh

Jæja stelpur

Það verður frí á æfingunni á morgun en svo er leikur við Þór/KA um helgina (eða hvað), fylgist vel með blogginu en hér neðst eru skilaboð frá foreldraráðinu............

Leikurinn frestast þangað til í ágúst vegna fótboltadags sem að KSÍ stendur fyrir á Akureyri á laugardaginn, heimsókn frá Sigga Ragga landsliðsþjálfaranum osfv. En það verður í staðin æfing hjá 2.fl.kv á Hlíðarenda kl 16:00

Þær sem ætla að taka þátt í vinnu vegna Reykjavíkur Maraþonsins föstudaginn 17. ágúst kl: 13:00 - 21:00 verða að commenta sem fyrst........


» 12 hafa sagt sína skoðun

23.07.2007 16:29:51 / Teddi

Áfram heldur slagurinn......

Jæja stelpur

Við fórum en eina ferðina til Akureyrar þar sem að við þurftum að yfirgefa svæðið tómhentar, þrátt fyrir að hafa vaðið í færum og fengið fá færi á okkur, eiginlega bara 3-4. En veltum okkur ekki upp úr því nema þá til að komast að því hvað við getum gert til að laga þetta hjá okkur, ok ?

Vikan:

Mánudagurinn 23.júlí, Hlíðarendi FRÍ FRÍ FRÍ, en að sjálfsögðu skokkið þið sjálfar

Þriðjudagurinn 24.júlí, Hlíðarendi kl 18:00-19:30, spurning um ísbíltúr eftir æfingu ;)

Miðvikudagurinn 25.júlí, Hlíðarendi kl 19:30-21:00

Fimmtudaginn 26.júlí, Hlíðarendi kl 19:30-21:00

Föstudagurinn 27.júlí, Hlíðarendi kl ?

Laugardagurinn 28.júlí, Hlíðarendi Íslandsmótið 2.fl.kv Valur - Þór/KA kl 16:00

Sunnudagurinn 29.júlí, FRÍ FRÍ FRÍ

 

 


» 0 hafa sagt sína skoðun

21.07.2007 19:19:17 / Teddi

Byrjunarliðið er..........

Jæja stelpur

Þetta er hópurinn sem að hefur verið valinn í þetta verkefni og ég treysti honum til þess að klára þetta verkefni sem að verður ekki auðvelt. Þór/KA stelpurnar eru barráttuglaðar og mjög ákveðnar. Það verða allar að gefa af sér í þetta verkefni og það skiptir engu máli hvað við spilum margar eða fáar mín, við förum í þennan leik eins og við séum allar að fara að spila. Þegar að leikmaður kemur inná þá er það ekkert síður mikilvægt að hann standi sig í þann tíma sem að hann spilar heldur frekar en sá hafi gert sem kemur útaf og við komum inná til þess að breyta leiknum. Við fáum það út úr leiknum sem að við viljum..............

Byrjunarliðið fyrir leikinn á móti Þór/KA er eftirfarandi:

 

---------------------------Mjöll---------------------------

Aníta------María Rós (capt) -----Anna María------Lilja

--------------------------Bentína-------------------------

-----------------Dagný------------------------------------

------------------------------Begga Gná------------------

Begga B------------------------------------Thelma Björk

----------------------------Bára----------------------------

Bekurinn:

Sólveig, Magga, Lovísa, Kristrún og Andrea

Ragga liðstjóri og Teddi þjálfari

Allir verða að taka þátt í upphitun, því að við erum lið þar sem að allir leggja hönd á plóginn.

Áfram Valur

Sjá færsluna hér að neðan.......


» 0 hafa sagt sína skoðun

21.07.2007 17:21:20 / Teddi

Sunnudagurinn 22.júlí....ferð til Akureyrar

jæja stelpur

Nú er komið að leik no 4 í Íslandsmótinu hjá okkur og er hann á móti Þór/KA sem vann GRV 4-0 um daginn. Þór/KA er með mjög gott lið og ég veit að þetta verður ekki auðvledur leikur en við mætum sterkar til leiks og byrjum við daginn heima hjá Sólveigu í pasta og ávöxtum.

Við mætum allar í ferðagallanum okkar sem að við fengum áður en að við fórum til Danmerkur og sem að var partur af Afrekshópnum (SKYLDA). Mættum líka allra með hvíta sokka til þess að vera öruggar ef að við getum ekki spilað í rauðu sokkunum og Bára ég þarf ekki að nefna það að þú þarft að koma með legghlífar er það ? 

Munið að mæta með 6500.- kr og svo einhvern pening til þess að geta borðað á Akureyri (allar saman) eftir leikinn.

Hópurinn sem að fer í þessa ferð eru eftirfarandi:

Mjöll, Anna María, Lilja, Magga, Kristrún, Lovísa, Sólveig, María Rós, Thelma Björk, Aníta, Bára, Bentína, Begga B, Begga Gná, Dagný (3.fl.), Andrea (3.fl), Ragga (liðsstjóri) og Teddi (þjálfari)  

Sunnudagurinn

kl 11:00, mætt heim til Sólveigar í Grafavoginn nánar tiltekið í Viðarrima 56

kl 11:45, liðsfundur

kl 12:15, lagt af stað niður á flugvöll á nokkrum bílum

kl 12:45, hópurinn tékkaður inn

kl 13:00, allar að róa Báru, Lovísu og Kristrúnu niður fyir flugið :lol:

kl 13:15, flug NY - 132 tekur á loft á leið til Akureyrar

kl 14:00, flug NY - 132 lendir á Akureyri

kl 14:30, hópurinn fer saman í gönguferð um Akureyri

kl 14:45, leikmenn gera sig klára fyrir leikinn við Þór/KA

kl 15:30, 16 leikmenn klárir í upphitun

kl 16:00, leikur Þór/KA og Vals í 2.fl.kv hefst

kl 17:45, leikur búinn :$

kl 18:30, leikmenn klárir og á leið til þess að borða

kl 19:50, mæting upp á flugvöll 

kl 20:15, hópurinn fer upp í flugvél

kl 20:25, flug NY - 163 tekur á loft á leið til Reykjavíkur

kl 21:15, flug NY - 163 lendir á Reykjavíkurflugvelli

Byrjunarliðið kemur inn mjög bráðlega á bloggið........... 

Áfram Valur

 

 

 


» 5 hafa sagt sína skoðun

20.07.2007 12:07:38 / Teddi

Leikurinn við Þór/KA

Jæja stelpur

Þá er það ákveðið að spila þenna leik við Þór/KA núna um helgina, nánar tiltekið á sunnudaginn og hefst leikurinn kl 16:00 eða 17:00 (að staðartíma). Við munum fara með flugi kl 13:15 og er mæting kl 12:30 uppá flugvöll. 

Kostnaðurinn við þessa ferð verður  6500.- kr pr/mann, áætluð heimkoma til baka kl 21:15. Það sækir okkur rúta á flugvöllinn á Akureyri kl  14:00 og skutlar okkur svo þangað í flugið sem er kl 20:25.

Ég hef aðeins 2 spurningar ?

  1. Eigum við að reyna að fá einhvern foreldra til þess að elda fyrir okkur hádegismat fyrir flugið t.d. pasta ;) ?
  2. Á ég að fá tilboð í mat fyrir hópinn á Friðriki V eins og við gerðum síðast eftir leikinn ? 

Munið að það er æfing kl 11:00 á laugardaginn á Hlíðarenda............. 

Við ætlum að halda því áfram sem að við erum búnar að vera gera á æfingum núna undanfarið og fylgja eftir góðum sigri á GRV, þar sem að annað liðið átti ekki möguleika en það er spurning hvort liðið það var, miða við lestur hina ýmsa netmiðla :$ 

Áfram Valur  


» 4 hafa sagt sína skoðun

20.07.2007 00:34:54 / Teddi

Leikur um helgina.............

Jæja stelpur

Það lítur út fyrir það að við munum spila við Þór/KA á laugardaginn fyrir norðan. Þetta er 90 % öruggt en málið er að ef að við förum þá er spurningin hvernig við förum þangað með rútu eða með flugi. Tek það samt fram að ég veit ekki hvort að rútan hjá Betu og Gylfa sé laus en frétti að hún hefði bilað um daginn, þannig að ég veit ekki hvort að það sé hægt að horfa á sjónvarpið alla leiðina :whut: tek það fram að ég get ekki tekið ábyrgð á að tímasetningarnar standist 100 % sem koma fram hér að neðan :P 

Tillaga A

Ef að við förum með flugi þá tekur þetta ekki allann daginn heldur u.þ.b 45 mín hvor ferð og svo leikurinn 90 min. Þannig að við getum farið ca. kl 11:00 og komið heim kl 18:00 en ............... við myndum þurfa að borga 6000.- kr pr/mann og kannski 1000.- kr í smá mat en félagið borgar mismuninn vegna þess að þetta er ferð í Íslandsmótinu.

Tillaga B

Ef að við myndum fara með rútu þá þyrftum við að leggja af stað kl 07:00 og þá væum við kominn kl 13:00 og myndum spila kl 15:00 og svo myndum við borða og svo leggja af stað kl 19:00 og heimkoma væri kl 01:00. Kostnaður við þetta væri matur fyrir ykkur sem að við myndum borða á leiðinni til og frá ca. 3000.- pr/mann (hollt, ekki hamborgari hehehe 2 matar innifaldir)

Tillaga C

Ef að við myndum fara á föstudeginum þá myndi ég missa af afmælisveislu hjá Margréti, Dóru Maríu og Sif :frown: Við myndum leggja af stað kl 16:00 vera komnar kl 22:00 veit ekki hvort að við myndum þurfa að borga fyrir gistinguna en það gæti verið. Morgunmatur og svo leikur kl 12:00 og brottför kl 15:00 og komnar heim kl 21:00. Kostnaður ca. 3500 kr pr/mann og þá reikna ég með að við þurfum ekki að borga fyrir gistinguna (innifalið 2 matar og morgunmatur)

Nú er bara spurning hvaða leið eigum við að velja. Nú er bara að commenta allar sem fyrst...................koma svo stelpur...............allar saman..........   


» 15 hafa sagt sína skoðun

15.07.2007 16:41:45 / Teddi

Vikan hjá okkur...............

Jæja stelpur

Það er dálítið í næsta leik hjá okkur í Íslandsmótinu en ég mun reyna að fá æfingaleik fyrir okkur núna á næstunni, fylgist vel með 8| Það getur verið að það sé leikur á þeim dögum sem að stendur nánar síðar..........

Vikan:

Mánudagurinn 16.júlí, Hlíðarendi kl 19.30-21:00

Þriðjudagurinn 17.júlí, Hlíðarendi kl 19.30-21:00

Miðvikudagurinn 18.júlí, Hlíðarendi kl 17:30-18:30 svo förum við á leikinn hjá U19 kl 19:15

Fimmtudagurinn 19.júlí, Hlíðarendi kl 17:30-18:30

Föstudagurinn 20.júlí, Hlíðarendi kl 16:30-18:00

Laugardagurinn 21.júlí, nánar síðar.....

Sunnudagurinn 22.júlí, nánar síðar.....

Mánudagurinn 23.júlí, Hlíðarendi kl 18:00-19:30

Þriðjudagurinn 24.júlí, Hlíðarendi kl 18:00-19:30

Áfram Valur........ 


» 0 hafa sagt sína skoðun

11.07.2007 00:43:24 / Teddi

Vikan hjá okkur..........

Jæja stelpur

Það verða æfingar alla vikuna hjá okkur og það er komið í ljós að það verður ekki leikur hjá okkur um helgina.

Vikan:

Miðvikudagurinn 11.júlí, Hlíðarendi kl 19:00-20:30

Fimmtudagurinn 12.júlí, Hlíðarendi kl 16:45-18:00

Fimmtudagurinn 12.júlí, Kópavogsvöllur Visabikarinn mfl.kv Breiðablik - Valur kl 20:00 

Föstudagurinn 13.júlí, Hlíðarendi kl 16:30-18:00

Laugardagurinn 14.júlí, skokka sjálfar 10 km, gera 2 pakka 40-80-40 og teygja vel 

Sunnudagurinn 15.júlí, FRÍ FRÍ FRÍ

Áfram Valur

 


» 1 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 8
Klukkan
Dagsetning
19. maí 2012
Reykjav�?�?�?�??�?�?�â�?��?��?�?â�?� �?¢â�??¬â�??¢
Niðurtalningu lokið!
Fyrir 1887 dögum
RSS tengill